Landsbankinn styður margvísleg samfélagsverkefni með fjárframlögum úr Samfélagssjóði, með stuðningi útibúa við verkefni í nærsamfélagi og með samstarfssamningum. Einnig er leitast við að auka beina þátttöku starfsmanna í samfélagsverkefnum, m.a. með ráðgjöf á ýmsum sviðum sem tengjast fjármálum og nýsköpun.
Verkefnin eru mjög fjölbreytt og með þeim styður Landsbankinn m.a. ferðaþjónustu, íþróttalíf, listir og menningu, fræðslu, slysavarna- og björgunarstarf og réttindabaráttu hinsegin fólks.
Nánar um Gulleggið
Landsbankinn er einn af aðalstyrktaraðilum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Bankinn vill styðja við bakið á öflugu slysavarna- og björgunarstarfi um allt land. Slysavarnafélagið Landsbjörg er landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi og ein stærstu sjálfboðaliðasamtök á Íslandi. Markmið starfseminnar er að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum.
Nánar um starf Slysavarnarfélagsins Landsbjargar
Viðskiptalausnir á Einstaklingssviði bankans sjá um fjármálafræðslu til einstaklinga og eflingu fjármálalæsis. Víðtæk umfjöllun og fræðsla um efnahag og fjármál í víðum skilningi fer fram á Umræðunni, frétta- og efnisveitu Landsbankans, sem fjallað er nánar um í kaflanum um útgáfu.
Landsbankinn hefur um árabil lagt áherslu á fjármálafræðslu fyrir ungmenni í framhaldsskólum, bæði yngri nemendur sem eru að hefja nám, sem og þá sem senn ljúka námi. Fræðslunni er ætlað að efla fjármálaskilning nemenda og gera þá betur í stakk búna til að gera áætlanir til framtíðar. Fræðsluheimsóknirnar standa öllum framhaldsskólum til boða og eru skipulagðar í samstarfi við fulltrúa þeirra.
Á árinu 2018 voru heimsóknir í framhaldsskóla 51 talsins í 17 skóla víða um land sem óskuðu eftir fræðslu og náði þannig til um 1100 nemenda. Ekki fer fram kynning á vörum eða þjónustu bankans heldur er um að ræða almenna fjármálafræðslu.
Starfsmenn í Þjónustuveri bankans hafa sinnt fræðslu á höfuðborgarsvæðinu og starfsmenn útibúa á landsbyggðinni hafa séð um kynningar í sínu nágrenni. Lögð er áhersla á að yngri starfsmenn sinni fræðslunni svo að hún sé sem næst því að vera á jafningjagrunni.
Landsbankinn tekur einnig virkan þátt í verkefninu Fjármálavit, sem er kennsluefni í fjármálafræðslu fyrir nemendur í eldri bekkjum grunnskóla. Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) standa að verkefninu í samstarfi við aðildarfélögin og starfsfólk þeirra um land allt. Í ár hafa 35 starfsmenn Landsbankans tekið þátt í verkefninu og frætt nemendur víða um land. Fjármálavit hefur heimsótt alls 4000 nemendur í 10. bekkjum grunnskóla landsins í vetur.
Auk fræðslu til nemenda í grunn- og framhaldsskólum hefur Landsbankinn staðið fyrir fræðslukvöldum fyrir háskólanema í samstarfi við Stúdentaráð Háskóla Íslands.
Nánar um Fjármálavit
Landsbankinn er einn af stofnaðilum Fjártækniklasans ásamt 62 fyrirtækjum, háskólum, samtökum og fleiri aðilum. Fjártækniklasinn hóf starfsemi sína í nóvember 2018. Tilgangur Fjártækniklasans er að efla nýsköpun í fjármálum og gera viðskipti af öllu tagi auðveldari og betri. Hann er samfélag þeirra sem starfa við fjártækni og vilja stuðla að aukinni verðmætasköpun, samkeppni og bættum lífskjörum.
Fjártækniklasinn mun standa fyrir viðburðum, svo sem fundum um margvísleg svið fjártækni, kynningum á nýsköpunarfyrirtækjum, fyrirtækjastefnumótum og fleiru. Klasinn vinnur einnig að framgangi fjártækni á allan hátt, svo sem með tengingum við erlend fyrirtæki og klasa, tengingu á milli mögulegra samstarfsaðila og ýmis konar sérverkefnum.
Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Helsta markmið sjóðsins er að forritun verði hluti af námskrá grunn- og framhaldsskóla. Sjóðurinn styrkir skóla svo að þeir geti boðið upp á forritunarkennslu fyrir nemendur, gefur skólum tölvubúnað og veitir ráðgjöf til menntunar og þjálfunar kennara í forritunarkennslu. Landsbankinn er einn af bakhjörlum sjóðsins ásamt Reiknistofu bankanna, mennta- og menningarmálaráðuneytinu, CCP, Icelandair og fleiri fyrirtækjum.
Landsbankinn hefur verið aðili að klasasamstarfi í ferðaþjónustu frá upphafi samstarfsins árið 2012. Helsta markmið þess er að auka samkeppnishæfni og verðmætasköpun innan ferðaþjónustunnar og er verkefnið unnið í anda klasaaðferðafræði Michaels Porters. Að klasasamstarfinu standa lykilfyrirtæki á sviði ferðaþjónustu, opinberir aðilar og fyrirtæki sem styðja við eða eiga samstarf við greinina.
Í janúar 2017 skrifaði Landsbankinn undir yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu sem var staðfest af forsvarsfólki yfir 250 fyrirtækja að viðstöddum forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, sem er verndari verkefnisins.
Það eru Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Íslenski ferðaklasinn sem standa að verkefninu í samstarfi við Ferðamálastofu, Samtök ferðaþjónustunnar, Íslandsstofu, Stjórnstöð ferðamála, markaðsstofur landshlutanna, Höfuðborgarstofu og Safetravel. Landsbankinn er einn af bakhjörlum verkefnisins ásamt sex öðrum fyrirtækjum.
Ábyrg ferðaþjónusta er hvatningarverkefni sem snýr að því að íslensk ferðaþjónustufyrirtæki sammælist um nokkrar skýrar og einfaldar aðgerðir um ábyrga ferðaþjónustu. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að því að Ísland verði ákjósanlegur áfangastaður ferðamanna um ókomna tíð sem styður við sjálfbærni fyrir komandi kynslóðir Íslendinga.
Landsbankinn er aðalbakhjarl Skólahreysti og leggur keppninni lið af krafti. Markmið Skólahreysti er að hvetja börn til að taka þátt í alhliða íþróttaupplifun sem byggð er á grunnforsendum almennrar íþróttakennslu og þar sem keppendur vinna að mestu leyti með eigin líkama í þrautum.
Vinsældir Skólahreysti hafa aukist ár frá ári. Keppnin var haldin í fjórtánda sinn vorið 2018 með þátttöku 105 grunnskóla af öllu landinu.
Nánar um Svanna
Landsbankinn hefur átt mjög gefandi samstarf við UN Women á Íslandi undanfarin ár og verið bakhjarl landsnefndarinnar í mikilvægum verkefnum. Bankinn styrkti sérstaklega HeForShe-hreyfingu UN Women þetta árið. Var styrkurinn í nafni 876 fyrirtækja sem voru flokkuð sem framúrskarandi eftir greiningu Creditinfo. Landsbankinn skrifaði árið 2011 undir Jafnréttissáttmálann (Women’s Empowerment Principles – Equality Means Business), alþjóðlegt átak UN Women og UN Global Compact. Með undirskriftinni skuldbatt bankinn sig til að vinna að jafnréttismálum innan fyrirtækisins.
Nánar um UN Women
Samtök um ábyrgar fjárfestingar á Íslandi, IcelandSIF, voru stofnuð í nóvember 2017. Tilgangur samtakanna er að stuðla að aukinni þekkingu og umræðu um aðferðafræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga. Landsbankinn er eitt af 23 fyrirtækjum sem tók þátt í stofnun samtakanna en þeim er ætlað að vera óháður vettvangur fyrir umræðu og fræðslu um ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar.
Nánar um Iceland Luxury
Nánar um Íslenska sjávarklasann
Á árinu 2018 studdi Landsbankinn Vigdísarstofnun sem starfrækt er í Veröld – húsi Vigdísar. Vigdísarstofnun er alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar og hlaut í nóvember 2011 samþykki Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, til að starfa undir merkjum hennar.